Fréttir af byggingu Fuglasafns Sigurgeirs
Frá 1999 til 2008
Sigurgeir var lengi búinn að ganga með þann draum að
byggja alvöru safn undir fuglana sína. Honum auðnaðist ekki
að koma því í verk áður en yfirgaf þessa
jarðvist. Nú hafa aðstendur hans og aðrir góðir
vinir ákveðið að halda mynnignu Sigurgeirs á lofti
með því að byggja veglegt fuglasafn í Mývatnssveit.
18. desemberber 2008: Það
er búið að vera nokkur vetur hjá okkur undanfarið,
nokkur snjór og mikið frost. Sólin rétt nær
yfir sjóndeildarhringinn. Sveitin okkar er aldrei fegurri en við
þessar aðstæður. Trén hrímuð í
frostinu sem hefur þó nokkrum sinnum farið niður
fyrir -20°C. Það er nú ekki amalegt að koma við
og kíkja á safnið, fá heitt kakó og horfa
á frostið úti.
Seinustu daga hefur snæugla verið á sveimi í
kringum safnið. Þetta er ekki algeng sjón að sjá
snæugluna svona í byggð en hún er ákaflega
tígulegur og fallegur fugl. |
|
 |
|
15. desember 2008: Rannsóknir.
Við töldum álftir á Neslandavíkinni í
ár. Þetta verkefni er í samvinnu við Náttururannsóknarstöðina
við Mývatn. Það verður gaman að sjá
hvernig fjöldin þróast á næstu árum.
Fyrstu álftirnar sáust hér í 18 viku eða
í lok apríl. Þær koma ekki fyrr á víkina
því hún er ísilögð og vakirnar byrja
ekki að opnast fyrr en um þetta leiti. Í 27 viku, í
júnílok, fer þeim svo að fjölga verulega
og eru þær yfir 150 stk á víkinni í vikum
28-34, gróflega í júlí og ágúst
og yfir 200 í vikum 31-34. Álftirnar verpa í hólmunum
og helga sér sitt svæði og hleypa engum öðrum
álftum inn á það fyrr en að varpi loknu en
það er í kring um 27 viku. Í 37 viku, byrjun september,
eru þær komnar niðurfyrir 50 stk og sú síðasta
fór í 40 viku, lok september. Hér má sjá línurit yfir fjölda álftanna á
víkinni fyrir árið 2008
Það er einstakelga gaman að sjá allar álftirnar
á víkinni yfir hásumarið, hún er bara
hvít af álftum. |
12. desember 2008: Hljómsveitin
Krossbandið hélt aðventutónleika í safninu
hjá okkur í kvöld. Tónleikarnir tókust
mjög vel og þeir fáu sem mættu skemmtu sér
konunglega. Hljómsveitin sagði að það væri
mjög gaman að spila í safninu og að hljómburður
væri góður. Þau skemmtu sér einnig vel og
sögðu að þau hefðu ekki smemmt sér eins
vel á tónleikum þar sem voru jafn fáir og þarna.
Við vonum að þetta sé bara upphafið af fleiri
svona uppákomum og að þær verði fjölsóttari
í framtíðinni. |
30. nóvember 2008: Börn úr Hafralækjarskóla úr Aðaldal
komu fyrr í haust og skoðuðu safnið. Þau gerðu
ýmis verkefni í tengslum við heimsóknina í
safnið og sendu okkur svo hluta afrakstursins. Þessi verkefni
voru umsvifalaust sett upp á vegg hjá okkur enda fræðandi
og skemmtilega unnin. Þökkur krökkunum kærlega fyrir
þetta.
Fleiri skólar hafa heimsótt okkur, bæði héðan
úr nágreninu og lengra að og til dæmis komu 60
manns úr Listaháskólanum í Reykjavík
til okkar og fögnuðu þessu framtaki okkar í hástert. |
|
 |
|
19. nóvember 2008: Í dag lést Steingrímur Þorsteinsson, kennari,
frá Dalvík. Hann og Geiri voru miklir vinir og stoppaði
Steingrímur marga fugla upp fyrir Geira. Steingrímur fæddist
á Dalvík 13. október 1913. Hann bjó alla sína
tíð á Dalvík og var einn af máttarstólpunum
í menningarlífi Dalvíkinga. Hann var mjög virtur
sem kennari og í öðru því sem hann tók
sér fyrir hendur.
Við sendum aðstandendum Steingríms okkar bestu samúðarkveðjur. |
|
15. nóvember 2008: Starfsmannafélag
Kísiliðjunnar sálugu stofnaði styrktarsjóð
sem átti að styrkja uppbyggingu safns fyrir fuglana hans Geira.
Starfsmannafélagið lagði ákveðið stofnframlag
í sjóðinn og svo hafa aðrir verið að leggja
í hann. Starfsmannafélagið útbjó einnig
minningakort sem hafa verið seld út um allt land og afraksturinn
farið í sjóðinn. Sparisjóður Þingeyinga
hefur alltaf varðveitt sjóðinn og ávaxtað. Eftir
að Kísiliðjan hætti störfum tók Sparisjóðurinn
við minningakortunum og seldi þau áfram. Það
er alltaf hægt að fá minningakortin þar annaðhvort
á staðnum eða í síma 464-6220 og fer það
fé sem safnast í að styrkja rekstur og áframhaldandi
uppbyggingu safnsins.
Núna var okkur fært það sem komið var í
sjóðinn, um 3 miljónir, sem kom sér einstaklega
vel því þá gátum við greitt þá
reikninga sem voru komnir á gjalddaga. Við sendum fyrverandi
starfsmönnum Kísiliðjunnar og öðrum sem hafa
lagt í sjóðinn kærar þakkir. |
8. nóvember 2008: Framleiðnisjóður Landbúnaðarins veitti okkur styrk upp á 1.000.000 kr til að vinna margmiðlunarefni
fyrir safnið. Við þökkum kærlega fyrir okkur.
Margmiðlunarefni fyrir safnið hefur verið í skoðun
og er búið að gera drög að efni sem myndi hennta
okkur. Þetta á að bera bæði fræðandi
og skemmtilegt. Við erum með tilboð í þetta efni
og er það upp á 20 miljónir fyrir framleiðslu,
efni og tæknibúnað. Þetta eru mjög miklir
peningar og verðum við að leita víðar til að
geta fjármagnað þetta en til að lyfta safninu á
enn hærri stall faglega teljum við þetta nauðsynlegt. |
|
30 Október 2008: Framsýn- stéttarfélag
Þingeyinga stóð fyrir trúnaðarmannanámskeiði
á Hótel Reynihlíð í síðustu
viku. Trúnaðarmennirnir komu frá vinnustöðum
á félagssvæði Framsýnar sem nær frá
Vaðlaheiði til Raufarhafnar. Trúnaðarmennirnir 17 sátu
ekki bara á námskeiði heldur fóru þeir
í heimsókn í Fuglasafn Sigurgeirs á fimmudagskvöldið.
Þar tók við þeim Stefanía Stefánsdóttir
sem gerði þeim grein fyrir sögu safnsins og þeim
mikla fjölda fugla sem eru til sýnis á safninu og fórst
henni það vel úr hendi. Formaður Framsýnar,
Aðalsteinn Á. Baldursson, notaði tækifærið
og færði safninu að gjöf kr. 80.000,- til minningar
um Sigurgeir Stefánsson sem var félagsmaður í
Verkalýðsfélagi Húsavíkur sem nú
heitir Framsýn-stéttarfélag Þingeyinga. Aðalsteinn
sagðist hafa kynnst Sigurgeiri þegar hann starfaði hjá
Kísiliðjunni sem hefði verið mikil öðlingur.
Hann sagði það von félagsins að Fuglasafnið
ætti eftir að dafna um ókomna tíð um leið
og hann afhendi Stefaníu gjöfina frá félaginu.
Við hjá Fuglasafni Sigurgeirs þökkum Framsýnarfólki
kærlega fyrir komuna og höfðinglega gjöf. Verið
ávallt velkominn aftur.
|
|
|
16. Október 2008: Í dag var uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar
á norðurlandi haldin í Skagafirði sjá
frétt á vef ferðamálastofu.
Við erum mjög hreikin því þarna fengum við
viðurkenningu fyrir áhugaverða nýjung í ferðaþjónustu
á norðurlandi.
Svo höfum við gefið út jólakort til styrktar
safninu. Þetta eru 4 tegundir, 2 með myndir af safninu, 1 með
snjótittlingum og svo ein af hólma í Mývatnssveit
þar sem hann speglast í vatninu, allt mjög falleg kort.
Inni í kortunum er fuglavísa eftir Baldvin Stefánsson
frá Ytri Neslöndum. Jólakortin eru seld 8 stk í
pakka á 1.000 kr. Við vonum að sem flestir sendi fuglasafns
jólakort og styrki safnið í leiðinni. Kortin er
hægt að fá í Fuglasafninu og hægt að
panta þau á opnunartíma í síma 464 4477.
|
|
10. Október 2008: Nú er
fátt um gesti hér í safninu en þeir sem sælðast
hingað eru alltaf jafn ánægðir.
Gestafjöldi í september var með ágætum,
það komu rúmelga 700 manns til okkar og erum við
mjög ánægð með það, sérstaklega
miðað við það að engin markaðskinning hefur
farið fram ennþá. Nú er verið að byrja
vinnu vegna markaðsátaks næsta ár. Heimasíðan
er enn í vinnslu og gengur hægar en vonir stóðu
til. |
20. September 2008: Fólki er nú
farið að fækka á svæðinu en samt eru gestir
að tínast inn til okkar og verða alltaf jafn ánægðir.
Opnunartíminn styttist aðeins hjá okkur og verður
opið frá og með 1 október virka daga frá
kl. 14:00 til 16:00 og um helgar frá kl. 13:00 til 16:00 en svo
er alltaf hægt að hringja og panta opnun á öðrum
tíma.
Svo létum við verða af því að fá
okkur eigið lén fyrir heimasíðuna svo nú
er veffangið www.fuglasafn.is en um sinn verður tenging frá
gömlu síðunni.
Svo eins og þið sjáið er heimasíðan í
smá þróun núna og tekur einhverjum breytingum
á næstunni og vonandi til bóta. |
06. September 2008: Aðskóknin
í safnið hefur verið góð. Það er nokkuð
um að skólahópar séu að koma og einnig eldriborgarar.
Öll okkar orka hefur farið í uppbygginguna á safninu
en nú verður að fara og vinna í markaðssetningunni.
Í ágúst komu 600 manns í safnið og ég
held að hægt sé að fullyrða að allir sögðu
það sem þeir sáu var langt umfram væntingar.
Miðað við að það hefur engin markaðssetning
farið fram þá er þessi gestafjöldi mjög
góður.
Svo hefur fólk komið til mín og sagt mér sögur
af vinum og kunningjum sem hafa komið í safnið og lofað
það í hástert.
Það er alltaf ganan að fá hrós og þetta
sýnir að við erum á réttri braut með
safnið. |
17. ágúst
2008: Í dag var stóri dagurinn. Fuglasafn Sigurgeirs
var opnað formlega við hátíðlega athöfn.
Það komu um 250 mans og samfögnuðu okkur. Valgerður
Sverrisdóttir þingmaður flutti okkur kveðju þingmanna,
Margrét Valsdóttir oddviti Skútustaðahrepps sendi
okkur kveðjur frá sveitarstjórn og færði safninu
1 miljón króna að gjöf, Vilborg Gissurardóttir
sendi kveðju frá Atvinnuþróunarfélaginu,
Ólafur Ólafsson flutti kveðju frá Aurora velgerðarsjóð
og líkti starfsemi safnsins á skemmtilegan hátt við
fuglinn og að lokum minntist Vigdís Finnbogadóttir Sigurgeirs
og opnaði safnið formelga.
Það var gaman að fylgjast með gestum þegar þeir
fóru um safnið og sögðu allir að safnið færi
langt fram úr væntingum.
Orð gesta voru til dæmis: Frábært, það
flottasta sem ég hef séð, ég hefið ekki getað
ímyndað mér að þetta væri svona flott,
flottasta safn sem ég hef komið í, ekki hægt að
finna neitt sem hægt væri að gera betur og svo framvegis.
Þetta var stórkostlegur dagur, veðrið frábært
fjöldi gesta og allir ánægðir.
Við þökkum öllum sem komu og fögnuðu með
okkur og sérstaklega ræðumönnunum og þeirra
hlíu orðum í okkar garð.
Við þökkum Sel
Hótel Mývatn, RARIK og Landsvirkjun fyrir þeirra stuðning
við opnunina. |
 |
|
|
 |
10. ágúst 2008: Það hefur verið mikið að gera að undanförnu
og unnið langt fram á kvöld. Vefsíðan hefur
liðið fyrir þessa vinnu þar sem ég hef ekki
gefið mér tíma til að vinna í henni. Vona
að þið fyrirgefið það þegar þið
sjáið þessar myndir af safninu en það er að
taka á sig endanlega mynd og er að verða stórglæsilegt.
Óli Þröstur og Stefán Gunnarsson hafa verið
að hlaða hraunvegginn, Axel og Ögmundur vinna í sýningunni
og svo eru heimamenn að vinna í umhverfinu. |


|


|
26. júlí 2008: Í dag luku þeir Guðmundur og Haukur frá Sólgörðum við hellulögnina. Nú er þetta að verða reglulega
smekklegt í kringum safnið. |
|
|
25. júlí 2008: Gunnar Árnason hljóðmaður brenndi úr Reykjavík
á BMV mótorhjólinu sínu með allt dótið
á bakinu, setti upp hljóðkerfið og stillti það.
Síðan hélt hann áfram í hjólatúr
og ætlaði að koma aftur á sunnudag til að stilla
kerfið endanlega með Ögmundi ljósamanni. |
|
24. júlí 2008: Þrátt fyrir ríflega 20 stiga hita og sólbruna
hefur gengið vel með hellulögnina og hún langt kominn.
Jón og Arnar frá Securitas komu og tengdu bruna og þjófavarnakerfið
í dag. |
|
22. júlí 2008: Guðmundur og Haukur frá Sólgörðum mættu á svæðið í dag ob byrjuðu
að grafa fyrir ljósum og fóru svo að undirbúa
hellulögnina. Þeir vinna fyrir okkur á afar hagstæðum
kjörum og þökkum við kærlega fyrir það. |
 |
|
|
10. júlí 2008: Pétur og Halli komu í dag til að setja upp innihurðirnar
sem Norðurvík smíðaði. Svo kom grafa frá
Jóni Inga að laga undir grjóthleðsluna og stjórnaði
Óli þröstur þeirri vinnu. Það þurfti
að auka fláan og hlaða grjóti neðst til að
hraunið skriði ekki fram. |
|
|
09. júlí 2008: Það er búið að tyrfa bátaskýlið
og byrjað á safninu sjálfu. Fyrst þarf að
leggja grasþökurnar á hvolf og svo aðra þar
ofaná sem snýr rétt. Til að halda þökunum
á þakinu yfir safnhringnum, á strýtunni, er
sett trollnet fyrst, svo þaka á hvolf, aftur net og að
lokum rétt þaka. Svona vonumst við eftir því
að torfið haldist á þakinu. Svo er stefnan að
setja lynggróður á þakið svo það
verið eins og umhverfið í kring en samkvæmt áliti
sérfróðra manna má ekki færa lyngi nema
á vorin og haustin svo það verður að bíða
betri tíma. |
|
|
29. júní 2008: Í dag fengum við skemmtilega heimsókn. Afkomendur Jóhanns
Jóns Þorvaldssonar vinar Geira og fuglaáhugamanns
gáfu fuglasafninu allt eggjasafnið hanns. Magnús Jóhannsson,
Elín Guðmundsdóttir kona hans og Rannveig dóttir
þeirra færðu okkur safnið í dag.
Við færum þeim okkar bestu þakkir. |
|
|
16. maí 2008: Það
átti alltaf eftir að brjóta aðeins meira til að
koma rotþrónni fyrir. Hólmgeir kom á gröfu
frá Jóni Inga með ripper og með henni var tiltölulega
auðvelt að brjóta hraunið. Nú er næsta
mál að koma þrónni á sinn stað. Svo
var grafin skurður fyrir vatnslögnina frá borholunni að
safninu. Lögnina fengum við frá Set og er hún komin í skurðinn. Þökkum Jóni
Inga kærlega fyrir lánið á gröfunni, Hólmgeiri
fyriri vinnuna og Set fyrir lögnina. |
|
|
3. maí 2008: Bormenn
frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða komu hér
við á leið sinni til Akureyrar og boruðu fyrir okkur
vatnsholu. Það var borað 21 meter niður í jörðina
og þar er nóg af góðu vatni. Vatnsborðið
í holunni er nánast í sömu hæð og
Mývatn svo við þurfum ekki sérstaka holudælu
sem er gleðiefni. |
|
18. apríl 2008: Í
dag var síðasta flísinn lögð og þar með
er stórum áfanga lokið. Einnig var lokið við
að flota í botnin á tjörninni. Það þarf
aðeins að slípa hana og eftir það er hún
klár til málunar. |
|
|
14. apríl 2008: Flísalögin
sígur áfram, snyrtingarnar langt komnar og svo er eftir
að flísaleggja kringum ljósin í gólfinu
og kanntinn á tjörninni við gluggann. |
|
|
12. apríl 2008 úthlutaði Menningarráð Eyþings verkefnastyrkjum til menningarstarfs á starfssvæði Eyþings.
Er þetta önnur úthlutun ráðsins og fór
athöfnin fram í Tónlistarhúsinu Laugarborg að
viðstöddu fjölmenni. Alls bárust ráðinu
75 umsóknir um rúmar 60 milljónir. 49 verkefni hlutu
styrk að upphæð rúmar 20 milljónir króna.
Ávörp fluttu Helga Haraldsdóttir skrifstofustjóri
ferðamála í iðnaðarráðuneyti og Sigrún
Björk Jakobsdóttir, formaður menningarráðs.
Flutt voru tónlistaratriði af styrkþegum sem og danssýning
frá Vefaranum. Að þessu sinni féll hæsti
styrkur ráðsins í skaut tónlistarhátíðarinnar
Akureyri International Music Festival (AIM) Að hátíðinni
stendur áhugahópur um fjölbreyttan og lifandi tónlistarflutning.
Menningarráð Eyþings vonar að styrkir þessir verði menningar- og listalífi
á svæðinu hvatning til áframhaldandi góðra
verka.
Þarna fengum við 700.000 kr í styrk til uppsetningar
á sýningu í bátaskýlinu. Koma Sleypni
á stall og segja frá nýtingarsögu Mývetninga
á vatninu, veiðar og egg. Takk kærlega fyrir okkur.
|


|
6. apríl 2008: Jolli
skrapp til okkar á föstudaginn og lagfærði hliðarnar
í tjörninni. Svo var málað þar sem brúin
á að vera til að geta sett hana upp. Hún var svo
sett upp í dag en að vísu með krossviðsgólfi
en Íspan er að finna gler sem á að vera brúargólfið.
Tjörnin var svo þrifin í dag og er nú klár
til flotunar í gólfið. |
|
|
3. apríl 2008: Raflögnin
er komin nokkuð áleiðis. Búið að leggja
út flesta strengi og svo er verið að setja upp út
og neyðarljós. |
|
|
1. apríl 2008: Loftræstingin
er langt kominn. Það er búið að leggja að
loftræstisamsætðunni sem við fengum frá Blikkrás.
Það er eftir að leggja frá henni og inn í
salinn. Svo er eftir að tengja hana og setja upp stýringar.
Nú hefði verið gott að hafa 3 fasa rafmagn til að
geta keyrt loftræstinguna. Einnig hefði verið gott að
hafa hitaveitu til að þurfa ekki að setja rafmagnselement
í samstæðuna. |
|
|
29. mars 2008: Loftræstingin
er langt kominn. Það er búið að leggja að
loftræstisamsætðunni sem við fengum frá Blikkrás.
Það er eftir að leggja frá henni og inn í
salinn. Svo er eftir að tengja hana og setja upp stýringar.
Nú hefði verið gott að hafa 3 fasa rafmagn til að
geta keyrt loftræstinguna. Einnig hefði verið gott að
hafa hitaveitu til að þurfa ekki að setja rafmagnselement
í samstæðuna. |
|
|
25. mars 2008: Það
er langt komið að smíða brúnna yfir tjörnina
en hún er smíðuð úr ryðfríu stáli
frá Sandblæstri og Málmhúðun
Akureyri og sem fyrr gefa þeir okkur allt efni sem við þurfum.
Sendum okkar bestu kveðjur til Sandblástursmanna. Jolli kom
dagpart og flísalagði gólfið við aðalinngangin.
Svo nú á bara eftir að flísaleggja snyrtingarnar
og í kringum ljósin í gólfinu við hraunvegginn. |
|
 |
9. mars 2008: Jolli hefur
undanfarið handið áfram með flísalagnirnar.
Fyrir helgi kláraði hann að leggja síðustu flísarnar
í salinn og í dag náðist sá áfangi
að ég kláraði að fúga það sem
eftir var í salnum. Svo nú er flísalögnum lokið
inni í salnum og aðeins efrtir að þrífa þær
betur. Það er líka langt komið að leggja á
gólfin frammi, smávegis eftir í móttökusalnum
og svo fyrir framan útihurðina. Snyrtingarnar líka eftir. |
|
 |
25. febrúar 2008: Halli í Brekku og Pétur Kristjáns komu og unnu hér
í 2 daga og settu upp þá milliveggi sem eftir var
að smíða, þ.e. hólfa af skrifstofu og eldhús.
Þá er allri veggjasmíði lokið en samt nokkur
smíðavinna eftir í frágangi. |
|
 |
21. febrúar 2008: Bílaleiga Akureyrar hefur gengið
í fríðan flokk fyrirtækja sem styrkja uppbyggingu
fuglasafnsins. Þeir láta okkur í té bíla
fyrir mannskap sem er að koma að sunnan með flugi og vinna
fyrir okkur hér í Mývatnssveit á MJÖG hagstæðum kjörum. Við sendum þeim bestu kveðjur
og þakklæti. |
 |
16. febrúar 2008: Jón Illuga og hans lið var hér fyrir helgina og hélt
áfram að flísaleggja. Kláruðu nokkurnvegin
eldhús og skrifstofuaðstöðuna svo smiðir geti
byrjað að smíða þá veggi sem þarna
vantar. Það gekk einnig vel inni í sýningarsalnum
og er flísalögnin farin að taka á sig skemmtilega
mynd. Þó það sé mikil vinna að leggja
flísarnar eftir geirunum verður hún miklu skemmtilegri
þannig lögð. |
|
 |
23. janúar 2008: Okkur var boðið að vera viðstödd úthlutun
úr Aurora
Velgerðarsjóður í Þjóðmynjasafni
Íslands. Þar var búið að gera skemmtilega
umgjörð, flutt lifandi og skemmtileg tónlist. Þarna
var svo tilkynnt að það yrðu 4 aðilar sem fengju
styrk að þessu sinni. Tónlistarverkefnið
Kraumur, Sjúkrahúsbygging
í Malaví, Menntaverkefni
í Síerra Leóne og svo Fuglasafn
Sigurgeirs (á þessum link má sjá rökstuðning
þeirra fyrir því að veita okkur þennan styrk).
Það voru þau heiðurshjón Ingibjörg Kristjánsdóttir
og Ólafur Ólafsson sem stofnuðu þennan sjóð
á afmælisdegi Ólafs fyrir sléttu ári
síðan. Til hamingju með afmælið Ólafur.
Þegar Ólafur steig í pontu og tilkynnti að Fuglasafn
Sigurgeirs fengi 20 miljónir í styrk, já 20.000.000
kr, til að setja upp safnið tók hjartað mikin gleðikipp.
Og þau orð sem hann lét falla við þetta tækifæri
í okkar garð yljuðu manni vel.
Þessi styrkur skiptir okkur alveg gríðarlega miklu máli.
Gerir okkur kleift að setja safnið upp svo sómi sé
að og safnið verði áhugavert fyrir alla, hvort sem
það eru börn eða fullorðnir, áhugamenn eða
lærðir. Svo er þetta vítamínsprauta fyrir
okkur sem stöndum í þessu basli. Þetta sýnir
okkur að það sem við erum að gera er áhugavert
og sérstaklega að það eru aðrir en við sem
trúa því að við getum gert þetta safn
að áhugaverðum stað sem almenningur vill skoða.
Ingibjörg og Ólafur Þakka ykkur alveg
kærlega fyrir þetta framlag. |
 |
 |
 |
 |
21. janúar 2008: Fyrr
í mánuðinum hringdi í mig maður og spjallaði
við mig um fuglasafnið, hvernig gengi með bygginguna og að
fjármagna dæmið og kom með uppástungur hvað
væri hægt að gera. Hann kom ásamt öðrum
í sumar í heimsókn til að skoða hvernig gengi.
Í dag kom svo kvittun í póstinum um að það
hefðu verið lagðar 50.000 kr inn á reikning fuglasafnsins.
Þegar svona gerist styrkist maður í trúnni um
að við séum á réttri leið með þetta
verkefni og aðrir hafa trú á því sem er
að gerast.
Jórunn og Sigurgeir, Sigtúnum, Eyjafirði. Hafið
þið bestu þökk fyrir þetta framlag og takk
kærlega fyrir. |
|
17. janúar 2008: Jón
Illuga mætti í dag og byrjaði að flísaleggja
gólfin. Þetta er mikil vinna því flísarnar
eru lagðar í geira eins og öll byggingin er. Það
sem komið er lofar góðu og held ég að þetta
verði flott gólf. |
|
 |
12-13. janúar 2008: Halli í Brekku og Pétur Kristjáns komu og unnu eina
helgi með okkur við að klára að gifsklæða
loftin á snyrtingunum, fyrir ofan alla gluggana, fyrir neðan
þakgluggan og útveggina í skrifstofurýminu.
Sem sagt að það er búið að gifsklæða
allt nema vegginn sem skilur að skrifstofu og sal en hann verður
ekki settur upp fyrr en búið er að flísaleggja gólfin. |
 |
 |
29. desember 2007: Það
er langt komið með að leggja raflögnina fyrir snyrtingarnar.
Sigga, Svanhildur og Stefán hjálpuðu svo við að
mála sýningarsalinn og steyptu veggina frammi og er það
búið. |
|
 |
24. Desember 2007: Óskum
landsmönnum öllum
GLEIÐLEGRA
JÓLA OG FARSÆLS KOMANDI ÁRS.
Sendum sérstaklega góðar kveðjur til allra sem hafa
hjálpað okkur á einhvern hátt við byggingu
Fuglasafns Sigurgeirs. |
|
|
21. desember 2007: Í
dag náðis sá áfangi að það er farið
að kynda húsið með gólfhitalögninni og
hitatúpunni. Pípulögnun lokið nema fyrir ferskvatnið
en þar sem það er ekki komið í hús er
ekki hægt að klára það, einnig á eftir
að setja upp ofnana en það er ekki hægt fyrr en búið
er með alla veggi. Loftræstingin fyrir snirtingarnar er einnig
komin upp. |

|
13. desember 2007: Múrararnir,
Jolli, Höddi, Arna Benný og ???, mættu í dag
og kláruðu að pússa salinn. Eina múrvinnan
sem er þá eftir er að lagfæra tjörnina. Svo
er einnig verið að vinna í pípulögnum og raflögnum. |

|
4. desember 2007: KEA styrkti okkur um 150.000 kr til að skrá safnið á
viðurkenndan hátt. Vinna við skráningu er komin
nokkuð áleiðis en þó er langt í land
til að klára það. Þessir fjármunir hjálpa
okkur til að geta klárað það verkefni. Takk fyrir
okkur. Hér er linkur á frétt frá því þegar
Menningar og viðurkenningarsjóður KEA úthlutar styrkjum
til ýmissa verkefna í samfélaginu. |

|
21. nóvember 2007: Sparisjóður Þingeyinga styrkir byggingu fuglasafnsins um 200.000 kr. Þessir peningar nýtast
okkur vel í því átaki að koma safninu á
legg. Takk kærlega fyrir okkur. |

|
13. nóvember 2007: Í
dag var stofnað félag um fuglasafnið sem er sjálfseignarstofnun
og heitir Fuglasafn Sigurgeirs ses. Þetta þýðir
að fuglasafnið á sig sjálft og ef einhver hagnaður
verður af því fer hann allur í uppbyggingu á
safninu. Það er einnig komið lógó fyrir félagið,
sjá hér til hliðar. |

|
05. Nóvember 2007: Það hefur gengið ágætlega með pípulögnina
þó við strönduðum víða því
það vantaði alltaf eitthvað, það getur verið
ókostur að vera langt upp í sveit þegar eitthvað
smotterí vantar. En samt þetta er komið vel á
veg. Halli í Brekku kláraði að smíða
grindina í loftið á snyrtingunum svo nú er bara
eftir að klæða þær og þá er smíðavinna
búin þar.
|
 |
 |
02. Nóvember 2007: Gísli Gunnar er að hjálpa mér við pípulagnirnar,
þetta er heilmikið verk að leggja þetta allt svo vel
sé. Svo hefur Halli í Brekku verið hér um helgina
við að gifsklæða snyrtingarnar og smíða grind
fyrir loftið þar sem það er tekið niður. Það
er líka byrjað að spartsla í veggina sem á
að mála.
|
 |
 |
22. Október 2007: Hlutirnir ganga frekar rólega að okkur finnst. Það
er mikið að gera hjá iðnanðarmönnum svo eftitt
er að fá þá hingað upp í sveit. En
þó þokast aðeins áfram. Það er
búið að ganga frá lýsingu í tæknirýminu
og setja upp rafhitaketilinn frá Rafhitun , ganga frá raflögn inn í bátaslýli
og setja upp bráðabirgða lýsingu þar. Það er verið að leggja pípulagnir
að vöskum og salernum og setja upp salerniskassana. Snyrtingarnar
eru orðnar klárar til gifsklæðningar.
|
 |
 |
20. September 2007: Ísleifur
Jónsson ehf lét okkur hafa salerni, vaska og blöndunartæki
á mjög hagstæðum kjörum. Þökkum
kærlega fyrir þennan stuðning. |
|
9. september 2007: Nú
hafðist það að klára að klæða safnið
að utan. Aðeins eftir að klæða 2 hurðir og undir
þakskyggnið yfir inganginum. |

|
31.ágúst 2007: Jóhann
Jón Þorvaldsson var mikill vinur Geira heitins. Þeir
voru báðir miklir náttúruunnendur og hafa sennilega
kynnst í gegnum það áhugamál. Jóhann
Jón var mikill áhugamaður um fuglasafnið og hefur
komið nokkrum sinnum í skúrinn til Geira og einnig eftir
fráfall hans. Hann fylgdist vel með uppbyggingu safnsins.
Jóhann Jón lést í dag 31. ágúst
og sendum við fjölskyldu hans okkar bestu samúðarkveðjur. |

|
13.ágúst 2007: Halli
í Brekku og Pétur Kristjánsson frá Akureyri
komu og unnu svolítið í gifsklæðningu og gengu
svo frá þakglugganum á samt Gylfa frá Límtré
Vírnet. Svo nú er komið gler í gluggan og hægt
að horfa til himins innan úr safninu. |

|
29.júlí 2007: Jón
Illugason múrarameistari mætti á staðinn í
gær og pússaði tæknirýmið og ætlar
svo að koma einhvern næstu daga og klára leggja í
gólfið í tæknirýminu og svo í framhaldi
pússa alla veggina að innan. Tæknirýmið var
svo málað að í dag. Hitatúban fyrir hita
og neysluvatn frá Rafhitun kom fyrir helgina og verður sett upp um leið og gólfið
er klárt og í framhlaldi af því hefst lagnavinna.
|

|
14. júlí 2007: Í dag var klárað að ganga frá í jörð
raflögn og hitalögn út í bátaskýli. Malarvinnslan lánaði okkur litla gröfu til að grafa lagnirnar niður,
þökkur kærlega fyrir það. Þar sem ekki
var til einangrun utan um hitalagnirnar var brugðið á það
ráð að skera niður steinull sem við áttum
í afgnag í ræmur og gera svo rauf fyrir lagnirnar,
svo var búin til samloka úr ullinni og rörin á
milli, byggingaplast lagt yfir og svo mokað yfir. Það verður
að bjarga sér í sveitinni.
|
 |
 |
12. júlí 2007:Menningar
og styrktarsjóður Kaupþing
banka styrkti byggingu safnsins um 500.000 kr. Þökkum við
Kaupþing banka kærlega fyrir stuðningin sem á eftir
að koma sér vel.
|
|
01. Júlí 2007: Hlutirnir
ganga frekar rólega hjá okkur núna, það
er mikið að gera hjá iðnaðarmönnum og erfitt
að fá þá í vinnu. Þó þokast
áfram og verið að vinna í ýmsum hlutum. Klæðningin
utan á húsið þokast áfram, svo er verið
að huga að flísum á gólfið, setja lista
utan á glugga, búið að skipta um brotna rúðu,
loftræstingamál í skoðun, farið að huga
að uppsetningu safnsins og fá menn í það og
fleira.
Við fengum flotta gjöf frá Ólafi Sveinssyni, Akureyri.
Hann sendi okkur fleiri fugla í safnið, Himbrima, Lóm,
Blika, Hrossagauk, Sólskríkja, Skógarþröst,
Þúfutittling og Auðnutilltling. Einnig sendi hann okkur
frosin Haftyðril sem við ætlum að láta stoppa
upp. Og það var meira í sendingunni því
nokkur egg í eggjasafnið fylgdu með. |
 |
5. Maí 2007: Dagurinn
tekinn snemma til að taka á móti múrurunum Jóni
Illugasyni, Herði Benonísyni, Baldri Sveinssyni og lærlingi
hjá þeim (vantar nafnið á honum) en nú
er loksins komið að því að leggja ílögnina
á gólfin. Steypan kom frá BM Vallá og Ingvar
á dælubílnum sá um að dæla steypunni
inn í öll skot. Jóki á Gautlöndum kom og
hjálpaði okkur að draga úr steypunni. Svo tóku
múrararnir við og sléttuðu og pússuðu
svo nú eru gólfin rennislétt og fín. Takk
fyrir hjálpina allir saman. |
|
|
|
 |
23. mars 2007: Það
er verið að reyna þoka byggingunni áfram, klæðningin
utan á húsinu eykst og nú er önnur hliðin
á bátaskýlinu alveg búinn. Þetta var
talsvert puð þar sem það þurfti alltaf að
brölta upp og niður stillasinn og færa hann, en það
hafðist. Svo hefur einnig aðeins bæst á klæðninguna
á safnhúsinu. Þar að auki er verið að
undirbúa gólfhitalagnir.
|
 |
 |
10. mars 2007: Þessa
dagana hefur gengið frekar rólega hjá okkur. Þó
má sjá einhverja breytingu, klæðningin utan á
húsið er farin að sjást og gefa húsinu svip.
Inni er verið að leggja hitalagnir í gólf. Þar
erum við í smá vandamálum vegna þess að
2 rör sem við ætluðum að draga hitarörin í
gegnum virðast vera stíflaðar. Það er verið
að vinna í því að leysa það vandamál
og vonandi gengur það fljótlega. |
 |
05. mars 2007: Fjárlaganefnd
Alþingis veitti okkur styrk að upphæð 4.000.000 kr
af fjárlögum þessa árs til áframhaldandi
uppbyggingar fuglasafnsins. Við sendum fjárlaganefnd og Alþingi
okkar bestu kveðjur. |
|
03. Febrúar 2007: Héldum smá hitting til að að fagna því
að það er búið að útibyrgja húsið
og einnig að minnast þess að þann 31. janúar
hefði Geiri orðið 45 ára. Þarna komu þau
sem helst hafa hjálpað okkur hér heima fyrir og vonum
við að þau hafi átt góða kvöldstund
með okkur. Við þökkum þessu fólki kærlega
fyrir hjálpina.
Við þetta tækifæri færði fyrirtækið
Icefox, sem Stefán Þengilsson stýrir, okkur 50.000
kr til uppbyggingar safnsins. Þakka þér kærlega
fyrir Stefán.
|
 |
 |
13. Janúar 2007: Í
dag fengum við frábæra sendingu en það var
uppstoppuð snæugla og fálki. Með sendingunni voru
skilaboð um að þessi gjöf væri til mynningar
um Eystein Sigurðsson bónda á Arnarvatni í Mývatnssveit.
Eftir þessa sendingu vantar einungis 2 fugla til að eiga alla
íslensku fuglana en það eru haförn og þórshani.
Við sendum okkar bestu þakkir til þessa ókunna
velunnara safnsins. |
 |
06. Janúar 2007: Rétt
fyrir hátíðarnar kom til okkar stór kassi, svona
eins og jólapakki. Í þessum kassa voru ljós,
borð og tölvustandar sem koma til með að nýtast
vel við uppsetningu safnsins. Sá sem átti heiðurinn
af þessari sendingu var Jóhann Örn Guðmundsson,
fyrrverandi deildarstjóri hjá Símanum. En Jóhann
Örn var ekki hættur, hann stóð einnig fyrir því
að Síminn færði okkur 3 nýjar tölvur. Þær verða
notaðar í safninu til að miðla kynningar og fræðslu
efni. Við þökkum Jóhanni Erni og Símanum kærlega fyrir þessar frábæru sendingar.
|
 |
 |
24. Desember 2006: Óskum
landsmönnum öllum
GLEIÐLEGRA JÓLA OG FARSÆLS KOMANDI ÁRS.
Sendum sérstaklega góðar kveðjur til allra sem hafa
hjálpað okkur á einhvern hátt við byggingu
Fuglasafns Sigurgeirs. |
|
|
11. Desember 2006: Það
er aðeins farin að sjást hvernig safnið kemur til með
að líta út. Það er byrjað að setja
klæðninguna utan á húsið, fyrir ofan glugga
á safninu og neðst á bátaskýlinu. |
 |
 |
01. Desember 2006: Í
samkomu á Hótel Reykjahlíð var haldið upp
á sameiningu Sniðils hf og Malarvinnslunnar.
Þar var þessum samruna fagnað með dýrindis
veislu og í tilefni þessa var Fuglasafninu færðar
100.000 kr að gjöf til áframhaldandi uppbyggingar. Við
þökkum kærlega fyrir okkur. Það er alltaf gott
að fá svona stuðning og hugurinn sem fylgir frábær.
Á fundi hjá Kísilgúrsjóði var
einnig ákveðið að styrkja byggingu Fuglasafnsins um
600.000 kr. Takk kærlega fyrir, þessir peningar koma sér
reglulega vel til að geta greitt alla reikninga fyrir áramót. |
 |
23. Nóvember 2006: Það
er búið að loka húsinu. Nú er allt gler komið
á sinn stað, lausu fögin og hurðirnar. Sem sagt húsið
er fokhelt og er þetta stór áfangi hjá okkur.
Við erum með 2 litla ofna sem kynda safnið og er bara ágætis
hiti í því þó ekki sé kynt meira.
Næsta mál er að koma klæðningunni utan á
húsið og gera klárt inni til að leggja hitalagnrinar
í gólfið og steypa yfir þær og leggja svo
endanlegt gólfefni. |
 |
 |
08. Nóvember 2006: Nú
eru allir gluggar komnir í nema lausu fögin, dyr fyrir tæknirými
og neyðarútgangur eru komnar en hinar vantar ennþá.
Allt glerið frá Íspan er komið á staðinn og byrjað að koma því
fyrir.
Landsvirkjun færði
okkur aðal rafmagnstöfluna að gjöf en hún er
smíðuð hjá Rafskaut. Við þökkum Landsvirkjun
kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem og
fyrir afnot af rafstöð þar til við fengum rafmagn í
húsið. Óli Þór Jónsson lagði
svo að töflunni og tengdi hana, þakka þér
kærlega fyrir Óli. Starfsmenn RARIK komu svo og settu mæli
í töfluna og opnuðu fyrir rafmagn inn á töfluna.
Þetta er stór áfangi að fá rafmagn í
safnið og geta nú farið að lýsa og hita upp
án þess að keyra ljósavél. Þó
vildi ég nú frekar fá hitaveituna tengda til að
sjá um upphitun en sveitarstjórn hefur ekki séð
sér fært að leggja til okkar hitaveitu. |
 |
 |
29. Októberber 2006: Nú er búið að setja takkadúkinn utan á
húsið og loka með þakdúknum svo nú
er hringurinn orðinn þéttur. Ennþá á
þó eftir að keyra meiri möl að hringnum því
hún á að ná hærra upp. Gluggarnir eru flestir
komnir og byrjað að setja þá á sinn stað. |
 |
 |
23. október 2006: Flügger
litir hafa boðist til að styrkja safnið með því
að láta okkur hafa málningu og fúavörn á
safnið. Við þökkum kærlega fyrir okkur. |
3. Októberber 2006: Það tók viku að setja þakdúkinn á
húsið. Hann Gylfi frá Límtré
Vírnet stjórnaði þeirri vinnu og til aðstoðar
voru Axel, Dísa, Sigga og Biggi á Litluströnd. Nú
er þakið klárt undir torfið en það kemur
ekki fyrr en á næsta ári. Það er búið
að setja pappa og lektur utan á húsið og aðeins
beðið eftir klæðningunni. Þá er búið
að panta glugga og hurðir frá Gluggasmiðjunni og kemur
það upp úr miðjum mánuðinum. |
|
|
 |
|
20. September 2006: Árni hjá Rafteikningu skilaði fullkláruðum rafmagnsteikningum svo nú er
hægt að huga að raflögnum og öllu því
tengdu. |
17. September 2006: Eigendur fyrirtækisins
Sandblásturs og Málmhúðunar komu í heimsókn
til okkar og skoðuðu framkvæmdirnar. Þegar skoðunarferðinni
lauk kvöddu þeir okkur með þeim orðum að
við þyrftum ekki að greiða neina reikninga frá
þeim hér eftir. Þeir ætluðu að styrkja
uppbyggingu safnsins með því að láta okkur
fá þær vörur sem Sandblástur og Málmhúðun
hefur í sölu og frmaleiðslu.
Við þökkum þessu heiðursfólki kærlega
fyrir þetta höfðinglega framlag til safnsins. |
16-18. September 2006: Klárað
að klæða neðra þakið með krossvið
og einangra það, langt komið með að klæða
efra þakið með krossvið. Byrjað að smíða
þakkantinn |
 |
 |
08-10. September 2006: Manfreð
Vilhjálmsson arkitekt að fuglasafninu mætti um helgina
með syni sína og tengdason í sveitina. Þeir höfðu
ákveðið að koma til okkar eina helgi og hjálpa
okkur við að byggja. Þetta var frábært framtak
hjá þeim og gaman að hafa þá hjá
okkur þennan tíma. Við þökkum þessum
heiðursmönnum kærlega fyrir. |
 |
 |
20. Ágúst 2006: Það hefur gengið frekar rólega síðasta
mánuðinn vegna sumarfrís smiða og anna okkar við
vinnu og heyskap. Þó er fremri bygginginn klár til
að setja krossviðinn ofan á þakið. Það
er einnig búið að prófa dæla upp úr
brunninum fyrir ferskvatnið og lofar það góðu.
Árni hjá Rafteikningu hefur unnið talsvert í rafmagnsteikningum og eru þær
langt komnar. |
 |
21. Júli 2006: Veðrið
lék nú ekki alveg við okkur þegar við vorum
að setja upp þakbitana frá Límtré Vírnet,
það var bara ausandi rigning. Stefán Stefánsson
úr Kröflu kom og hífði bitana upp fyrir okkur.
Þökkum við honum og Kröfluvirkjun fyrir hjálpina
með þetta verk. |
 |
 |
20. Júlí 2006: Verið að undirbúa að koma þakbitunum fyrir. Á
myndinni sést þar sem búið er að byggja undir
rörið sem er í miðjunni og allir bitarnir hvíla
á. |
 |
11. Júlí 2006: Í dag fylgdum við Heiðari Þ. Jóhannsyni til
grafar en hann fórst af slysförum þann 2. júlí
síðastliðinn. Heiddi var búinn að vera okkur
mjög hjálplegur við fuglasafnið. Við þökkum
kærlega fyrir hjálpina og sendum aðstendum okkar bestu
samúðarkveðjur. |
 |
3. Júlí 2006: Límtré Vírnet styrkti okkur rausnalega í límtréskaupum fyrir safnið
og þökkum við kærlega fyrir okkur. Nú er loksins
byrjað að vinna aftur fyrir alvöru við bygginguna. Fyrst
ætlum við að reisa bátaskýlið og koma
okkur upp vinnuaðstöðu þar og halda svo beint áfram
í safnahúsið. |
 |
29. júní 2006: Starfsmenn
símans mættu á staðinn og plægðu niður
símastreng fyrir safnið. Þegar starfsmenn RARIK fréttu
af þessu sendu þeir rafstreng í sveitina í hvelli
og sáu símamenn einnig um að koma honum ofan í
jörðina. Þökkum við þessum mönnum fyrir
þeirra framlag. |
1. Júni 2006: Skógrækt
Ríkisins á Hallormsstað gaf okkur lerki- og birkibök
sem fara í klæðningu utan á húsið.
Við þökkum kærlega fyrir þessa höfðinglegu
gjöf. Stefán Stefánsson bílstjóri úr
Kröflu átti leið um austurlandið og sá hann
um flutningana á timbrinu hingað í Mývatnssveit.
Þökkum við honum einnig kærlega fyrir. |
 |
 |
30.maí 2006: Barst fuglasafninu
þessi höfðinglega gjöf, þökkum við
aðstandendum Veigu kærlega fyrir og óskum þeim
alls hins besta í framtíðinni og vonum að við
getum gert bátnum Sleipni hátt undir höfði í
safninu.
Fuglasafn Sigurgeirs, Ytri-Neslöndum.
Ömmusystir okkar, Sigurveig Sigtryggsdóttir í Syðri-Neslöndum
hafði mikinn áhuga á að varðveita bátinn
Sleipni, sem bróðir hennar Jón átti og notaði
til flutninga á Mývatni.
Bátur þessi hafði óneitanlega mikið hlutverk
í byggða- og samgöngumálum Mývetninga.
Sigurveig vildi styrkja safn sem væri í Mývatnssveit
og gæti hýst Sleipni og hafði lagt til hliðar fjármuni
sem ætlaðir voru til þess.
Það er því mjög vel við hæfi að
Fuglasafn Sigurgeirs, frænda Sigurveigar,
hljóti þennan styrk, að upphæð 3 milljónir
króna.
Með bestu kveðju.
F.h. dánarbús Sigurveigar Sigtryggsdóttur,
afkomendur Reynis og Tryggva Tómassona frá Syðri-Neslöndum.
|

|
17.maí 2006: Manfreð Vilhjálmsson skilaði
fullgerðum arkitektateikningum svo nú styttist í að allar
teikningar verði full klárar. Vetur konungur hefur aðeins verið
að ergja okkur með snjó þó það ætti
að vera komið sumar. En vonandi getur við farið að byrja
á fullu aftur.
28.mars 2006: Var á fundi hjá Bjarna Jóni
í Línuhönnun í
Reykjavík. Þar lagði hann fram lokateikningar af öllu
burðarvirki fuglasafnsins. Bjarni og fleiri hjá Línuhönnun hafa lagt mjög mikla vinnu í þessar teikningar. Við þökkum
Bjarna Jóni og hans samstarfsfélögum kærlega fyrir
aðstoðina og Línuhönnun sérstaklega fyrir að styrkja okkur með þessum teikningum
en Línuhönnun gaf alla
þessa vinnu.
| 7. febrúar 2006: Nú verður
að huga að áframhaldandi vinnu við byggingu safnsins.
Næsta mál er að fá límtré, einangrun,
timbur, gler og glugga til að geta útibyrgt húsið.
Vonandi verður hægt að byrja aftur á fullu í
apríl. Íspan ætlar
að styrkja okkur um gler í fuglasafnið bæði úti
sem inni. Þetta er mjög rausnarlegt hjá þeim og
þökkum við kærlega fyrir okkur og óskum Íspan alls hins besta. |

|
31. janúar 2006: Fjárlaganefnd
Alþingis veitti okkur 3.000.000 kr styrk til áframhaldandi
uppbyggingar á safninu. Takk kærlega fyrir. |
Desember 2005: Veðrið
getur verið skemmtiletg og fagurt í Mývatnssveit á
veturna líka. Svona getur útsýnið verið á
veturna hjá fuglasafninu.
Óskum öllum þeim sem hafa lagt okkur lið við
byggingu fuglasafnsins
Gleðilegra Jóla og farsæls
komandi árs |
 |
 |
23. Nóvember 2005: Búið
að slá frá öllu, steypan kom nokkuð vel út.
Það er mjög ánægjulegt að hafa náð
þessum áfanga.
Nú bíðum við með frekari frmakvæmdir
fram á næsta vor en þá verður byrjað
á fullu aftur. Svartasta skamdegið verður notað til
að leita að fjármagni og öðrum styrkjum til að
geta haldið áfram.
Við þökkum öllum þeim sem hafa aðstoðað
okkur við þesar framkvæmdir. |
 |
 |
 |
8. Nóvember 2005: Veggirnir steyptir. Það var mjög gaman að geta klárað
steypuvinnuna á þesu ári. Þó er smávegis
eftir þar sem við fengum ekki nóg af steypu frá
Steinsteypi á Húsavík. Útreiknað magn
á steypu er 29 rúmmetrar, þeir hjá Steinsteypi
sögðust hafa komið með 32,5 rúmmetra en það
dugði samt ekki, það vantar um hálfan rúmmeter
ennþá, það er eitthvað að þessari
mælingu hjá þeim þó þeir viðurkenni
það ekki. En þetta litla sem eftir er klárum við
næsta vor. |
 |
 |
23. Októberber 2005: Byrjað
að slá upp fyrir veggjunum, búið að slá
upp ytra byrgðinu á hringnum í safnarýminu og
járnabinda það. Það eru notaðar svokallarar
Doka plötur við uppsláttinn.
Birgir Steingrímsson frá Litluströnd hefur verið
duglegur að hjálpa okkur við járnabindinguna. Takk
fyrir það. |
 |
14. Októberber 2005: Það var góðum áfanga náð þegar
það hafðist að steypa plötuna. Steypan kom frá
Steinsteypi og Sniðli, dælubíll frá BM Vallá.
Jón Illugason og Hörður Benónísson múrarar
sáu um að rétta plötuna af og svo kom Sigurður
á Gautlöndum og aðstoðaði okkur líka. |
|
|
 |
|
6. Októberber 2005: Klárað að keyra í grunninn hraunmöl frá
Jóni Inga í Vogum, mölin þjöppuð með
jarðvegsþjöppu sem við fengum lánaða á
Sniðli. Jóhann á Gautlöndum kom á dráttarvél
og hjálpaði okkur í þessu verki. Þökkum
þessum aðilum kærlega fyrir aðstoðina. |
|

|
|
|
29. September 2005: Klárað að slá frá
sökklinum. Nú er bara að bíða eftir að allan
snjó taki upp svo hægt sé að keyra í grunninn.
21. September 2005: Sökklarnir
og tjörnin steypt, steypan kom frá Sniðli og Steinsteypi
og svo fengum við dælubíl frá Akureyri til að
dæla steypunni í mótin og er mikill hægðarauki
í því. Jón Illuga múrarameistari sá
um að rétta gólfin af. Þeir Gautlandabræður
Jóhann og Sigurður hjálpuðu einnig við steypuvinnuna. |
|
|
|
| 9. September 2005: Nú er komið
nokkuð vel á veg með að slá upp fyrir sökklunum.
Jónas smiður hefur leitt þá vinnu og honum hafa
verið til aðstoðar Dísa, Axel og Pétur. Svo komu
Birgir Steingrímsson og þeir Gautlandabræður Jóhann
og Sigurður og hjálpuðu okkur. |
|
|
|
|
| 24. Ágúst 2005: LOKSINS, LOKSINS
er byrjað að byggja. Jónas Gestsson smiður hjá
Norðurvík mætti á staðinn og byrjaði að
slá upp fyrir grunninum. |
 |
28. Júlí 2005: Rotþróin
frá Borgarplast kom í hlað í dag. Þetta er stórt og mikið
stikki, 9600 lítrar. Bíllinn hans Geira er bara lítill
miðað við hana.
Borgarplast styrkir byggingu fuglasafnsins að upphæð 183.000
kr, til mynningar um Böðvar Björgvinsson, símvirkja,
sem drukknaði í sama slysi og Sigurgeir. |
 |
19. júlí 2005: Norðurvík á
Húsavik hefur tekið að sér að byggja fuglasafnir og
hefjast handa von bráðar
14. júní 2005: Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs ákvað að styrkja byggingu fuglasafnsins um 150.000 kr. Takk kærlega
fyrir.
30. apríl 2005: Á aðalfundi KEA var okkur úthlutað 500.000 kr úr Menningar og viðurkenningarsjóði KEA. Það bárust 139 styrkumsóknir í sjóðinn og hafa aldrei verði fleiri. Veittir voru alls 57 styrkir að upphæð 13.365.000 kr. Sjá nánar á heimasíðu KEA www.kea.is Við þökkum KEA kærlega fyrir stuðninginn.
23. mars 2005: Fundað með starfsmönnum Línuhönnunar. Þeir eru alveg að verða búnir að teikna og reikna burðarvirki safnsins. Það eru þeir Bjarni Jón Pálsson byggingaverkfræðingur og Eyvindur Guðmundsson byggingatæknifræðingur sem hafa séð um þessa vinnu að mestu og svo er hér Ólafur Hjálmarsson byggingarverkfræðingur sem hefur sérhæft sig í hljóðburði bygginga að hjálpa okkur.
13. janúar 2005: Fjárlaganefnd Alþingis hefur ákveðið að styrkja byggingu fuglasafnsins um 4.000.000 kr. Þökkum við kærlega fyrir okkur.
17. desember 2004: Á fundi Byggðastofnunar var ákveðið að styrkja byggingu fuglasafnsins um 500.000 kr. Þökkum við þeim fyrir stuðningin og sendum öllum okkar bestu óskir um GLEÐILEG JÓL.
17. desember 2004: Manfreð Vilhjálmsson skilaði arkitektateikningum á ýmsum frágangi hússins. Þessar teikningar eru nú langt komnar.
8. desember 2004: Kristján Flygenring skilaði lagnateikningum og eru þær nú nánast búnar.
12. nóvember 2004: Friðrik Pálmason og Ingimar Ástvaldsson, frá Vinnuvélum Pálma Friðrikssonar, áttu leið hér um Mývatnssveit með gröfu. Þeim þótti það ekki tiltökumál að stoppa hjá okkur í eina 6 tíma í vindi og skafrenningi og brjóta með fleig fyrir rotþrónni og siturlögn frá henni. Þeir fóru frá okkur um kl 21:00 og áttu þá eftir að keyra á Sauðárkrók með allar græjurnar í fljúgandi hálku og vindi. Við þökkum þeim kærlega fyrir gott verk og óskum þeim góðrar heimferðar.
29. október 2004: Manfreð hefur verið á fullu við að teikna og skilaði ýmsum sérteikningum.
25. október 2004: Bjarni Jón Pálsson byggingaverkfræðingur hjá Línuhönnun er langt kominn með vinnuteikningar af grunni safnsins.
21. október 2004: Framleiðnisjóður landbúnaðarins veitti okkur 2.000.000 kr framlag til byggingar á safninu. Við sendum sjóðnum og aðstandendum hans kærar þakkir fyrir.
06. október 2004: Verkfræðistofan Línuhönnun hefur tekið að sér hönnun og teikningu á burðarvirki safnsins
05. október 2004: Árni Guðni Einarsson starfsmaður Rafteikningar sendi okkur rafskautsteikningar af grunni fuglasafnsins.
27. september 2004: Það byrtist flutningabíll með trailer á hlaðinu hjá okkur frá Vinnuvélum Pálma Friðrikssonar á Sauðárkróki. Bíllinn var lestaður með steinull sem er gjöf frá eigendum Vinnuvéla Pálma Friðrikssonar. Ingimar Ástvaldsson bílstjóri kom með ullina og hjálpaði okkur að afferma. Þessi einangrun dugar í allan grunninn eins og hann leggur sig. Við þökkum Friðriki, Svölu og öllum þeim sem eiga þátt í þessari gjöf kærlega fyrir og sendum þeim okkar bestu óskir um gott gengi í framtíðinni.
16. ágúst 2004: Þegar búið er að moka heilmiklu efni burtu þarf að keyra öðru efni í staðinn. Síðustu dagar hjá okkur hafa farið í það. Stefán Þengilsson lánaði vörubíl í aksturinn sem Axel sá að mestu um. Efnið var sótt í námu við flugvöllinn og gáfu langeigendur Reykjahlíðar fuglasafninu það. Nú er búið að aka því grófasta í grunninn og fínna efnið kemur ekki fyrr en sökklar hafa verið steyptir. Við þökkum Stefáni Þengilssyni og landeigendum Reykjahlíðar kærlega fyrir stuðninginn.
10. ágúst 2004: Nú mættu stóru tækin á staðinn og það var klárað að grafa fyrir grunninum. Sniðill lánaði vagn undir gröfuna. Jón Ingi Hinriksson lét okkur hafa gröfu til verksins og gróf sonur hanns Hinrik Geir grunninn fyrir okkur. Stefán Þengilsson lánaði vörubíl í aksturinn. Sendum við þessum mönnum og fyrirtækjum okkar bestu þakkir fyrir. Grunnurinn er ekki djúpur þar sem stutt var niður á hraun en það er svolítið mishæðótt. Það átti einnig að grafa fyrir rotþró í leiðinni en þar sem hún á að vera er bara hraunhella og þarf öflugri tæki í þann gröft.
6. ágúst 2004: Fyrsta skóflustungan tekinn. Það mættu um 80 manns til að fagna þessum áfanga með okkur. Örn frá Húsasmiðjunni á Húsavík færði okkur forláta skóflu sem Stefán Axelsson, faðir Sigurgeirs heitins, tók fyrstu skóflustunguna með. Pétur Bjarni fór aðeins yfir stöðu mála og sagði frá framgangi hönnunar hússins og hverjir hefðu komið þar að. Hvernig hefði gengið að fá tilskilin leyfi en það hefur tekið talsverðan tíma að fá þau.
Jóhannes Steingrímsson kom með góða kveðju frá Sigurgeir Aðalgeirssyni umdæmisstjóra Kíwanisumdæmisins Ísland - Færeyjar. Árni Einarsson sendi kveðju frá Rannskónarstöðinni við Mývatn.
Þá var það tilkynnt að Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti væri verndari Fuglasafns Sigurgeirs. Hún hefði gjarnan viljað vera hjá okkur en var vant við látinn og sendi okkur bestu kveðjur.
Að skóflustungunni lokinni var boðið upp á kaffi og kleinur og svo fóru þeir sem vildu að skoða fuglaskúrinn eins og hann er í dag.
Það yrði of langt mál að telja upp alla sem komu þarna og færðu okkur kveðjur og góðar óskir en við þökkum kærlega fyrir okkur.
4. ágúst 2004: Byrjað á veginum að safninu og plönum. Jón Ingi Hinriksson, Bergholti, lét okkur hafa gröfu og vörubíl í þetta verk og Sigurður Böðvarsson, Gautlöndum, kom á dráttarvél og vann þetta með okkur.
1. ágúst 2004: Ákveðið að taka fyrstu skóflustunguna næstkomandi föstudag 6. ágúst kl. 14:00 og er öllum velkomið að mæta og gleðjast með okkur á þessari stundu.
30. júlí 2004: Það komu engar athugasemdir við breytinguna á aðalskipulaginu en kærufrestur er útrunninn. Þá er eftir að fá samþykki sveitarstjórnar, skipulagsstofnunar og umhverfisráðherra.
29. júní 2004: Rafteikning hefur tekið að sér hönnun raflagna í bygginguna.
Júní 2004: Unnið að því að fá meistara til að sjá um bygginguna og klára hönnunina. Örn Smári Gíslason rafvirkjameistari hefur tekið að sér að vera meistari yfir raflögnum. Guðmundur Lúter Sverrisson pípulagningameistari hefur tekið að sér að vera meistari yfir pípulögnum. Gísli Sverrisson vélaaverkfræðingur ætlar að sjá um burðarþolsútreikninga ofl varðandi bygginguna. Kristján
Flygenring hjá VGK sér um hönnun vatns og hitalagna.
16. júní 2004: Breytingin á aðalskipulagi Skútustaðahrepps er auglýst í Lögbirtingablaðinu og er kærufrestur til 28 júlí.
3. júní 2004: Sveitarstjórn samþykkir afgreiðslu bygginganefndar.
26. maí 2004: Bygginganefnd samþykkir byggingu safnsins með fyrirvara um að aðalskipulagsbreytingin öðlist gildi.
29. apríl 2004: Sveitarstjórn afgreiddi breytingu á aðalskipulagi til umsagnar skipulagsstjóra.
30. mars 2004: Sótt um byggingaleyfi til bygginganefndar.
| Mars 2004: Heimasíða fuglasafnsins opnuð formelga á fundi hjá Kiwanisklúbbnum Herðubreið í Mývatnssveit. |
 |
Desember 2003: Manfreð klárar teikningarnar og verða þær nú sendar á verkfræðistofu í burðarþolsútreikninga.
Október 2003: Umhverfisstofnun gefur jákvæða umsögn um skipulagsbreytingar vegna byggingar fuglasafns í Neslöndum.
Ágúst 2003: Fullmótaðar teikningar koma frá Manferð. Óskað eftir smá breytingum á þeim.
Febrúar 2003: Farið að tala um náttúrustofu á Húsavík og þá nokkuð ljóst að ekkert verður að byggingu hennar í Mývatnssveit.
Janúar 2003: Sótt um breytingu á aðalskipulagi Skútustaðahrepps vegna byggingu fuglasafns í Ytri-Neslöndum.
September 2001: Undirbúningshópurinn telur sér ekki fært að halda áfram með málið. Það tengist byggingu náttúrustofu í Mývatnssveit og tengingu þess við fuglasafnið og Rannskókarstöðina við Mývatn.
Desember 2000: Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga skilar viðskipta og rekstraráætlun fyrir fuglasafnið.
Ágúst 2000: Undirbúningshópur fyrir byggingu fuglasafnsins myndaður. Í honum eru Pétur Bjarni Gíslason, mágur Sigurgeirs, Sigbjörn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps og Gunnar Örn Gunnarsson framkvæmdastjór Kísliliðjunnar.
Mars 2000: Fyrstu tillögur frá Manfreð líta dagsins ljós. Þetta eru skemmtilegar hugmyndir og ákveðið að þróa þær frekar.
Haustið 1999: Haft samband við Manfreð Vilhjálmsson arkitekt og hann beðinn að teikna fuglasafnið. |