![]() Geiri Sigurgeir StefánssonFæddur 31.01.1962 - dáinn 26.10.1999 Sigurgeir er fæddur og uppalinn í einni mestu náttúruperlu heimsins og því stutt í eitt helsta áhugamál hans sem voru fuglar. Hann byrjaði snemma að safna eggjum og síðar komu uppstoppuðu fuglarnir. Fyrst í stað fyllti hann allar hillur í herberginu sínu og víðar með uppstoppuðum fuglum. Besta lýsingin á áhuga Geira og upphafi söfnunar hans er að finna í grein úr Morgunblaðinu sem byrtist þann 20. desember 1998 tæpu ári áður en hann dó. Það vour Guðni Einarsson og Ragnar Axelsson sem heimsóttu Geira.Hér má sjá þessa grein.Þann 18. janúar 1996 tók Bjarni Hafþór Helgason viðtal við Geira og hér er hægt að sjá þetta viðtal. Þetta er stór skrá svo það þarf öfluga tengingu til að spila viðtalið. Árið 1985 gáfu Jón Sigtryggsson Syðri-Neslöndum og Guðmundur Ingvi Gestsson Geira ![]() Geiri og Sigurjón Manfreðsson
Sigurgeir lést af slysförum við vinnu sína í Kísiliðjunni ásamt Jóni Kjartanssyni frá Húsavík og Böðvari Björgvinssyni frá Reykjavík starfsmönnum Símans. Aðstandendur Sigurgeirs hafa nú tekið höndum saman og ætla að reysa fuglasafnið sem Geira dreymdi um. Þetta er mikið verk og kostnaðarsamt. Margir hafa boðið okkur hjálp og styrki en betur má ef duga skal. Safnið verður byggt á vatnsbakkanum í Neslöndum og er frábært útsýni yfir vatnið og fuglana sem þar eru. Vinnufélagar Sigurgeirs í Kísiliðjunni stofnuðu minningarsjóð um hann sem á að nota til að byggja fuglasafnið, Sparisjóður Þingeyinga hefur umsjón með sjóðnum og þar er hægt að styrkja byggingu safnsins og kaupa minningarkort.
![]() Stebba, Sigga, Fáni og Geiri með dauðar endur Geiri var virkur félagi í Kiwanisklúbbnum Herðubreið og hafa meðlimir hans selt fuglakorn til að afla fjár í bygginu fuglasafnsins. Hér að neðan má svo sjá nokkrar myndir af Geira við ýmis tilefni en þó oftast á ferðalagi um hálendi Íslands þar sem hann undi sér vel. Áhugin á fuglum byrjaði snemma eins og sést á myndinni hér til hliðar en systkinin hafa hér fundið 2 dauðar endur og eru mjög sorgmædd yfir örlögum þeirra.
Fuglasafn Sigurgeirs var opnað við hátíðlega atöfn þann 17. ágúst 2008
|